Forsíða
Facebook síðan okkar Flickr myndirnar okkar YouTube myndböndin okkar Hafðu samband English version

Transaquania-Into Thin Air

Frumsýnt 7. október 2010

Höfundar: Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir í samvinnu við dansarana

Frumsamin tónlist: Valdimar Jóhannsson og Ben Frost

Búningar og umgjörð: Gabríela Friðriksdóttir og Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir

Ljósahönnun og ljósatækni: Kjartan Þórisson og Aðalsteinn Stefánsson

Hljóðtækni: Baldvin Magnússon

„Transaquania – Into thin Air“ er sjálfstætt framhald af hinu óvenjulega verki „Transaquania - Out of the Blue“ sem Íslenski dansflokkurinn sýndi í Bláa Lóninu í apríl 2009 og var valin sýning ársins af gagnrýnendum Morgunblaðsins.

Verkið var fært inn á Stóra svið Borgarleikhússins þar sem saga og þróun þessara kynjavera Bláa lónsins hélt áfram. "Transaquania-Into thin Air" kannar aðrar hliðar þessara kynjavera.

Nú er allt vatn horfið af yfirborði jarðar og skilur eftir sig þurrt minni horfinna tíma.

Lífið er ljóðræn barátta, þar sem líkaminn er í stöðugri ummyndun, aðlögunarhæfni og stöðug stökkbreyting verður kjarni lífsins, eins og heimspeki kamelljónsins.

Í þessu nýja dansverki taka, Erna, Damien og Gabríela áhorfendur í epískt ferðalag og kanna hið viðkvæma jafnvægi og hinn þunna þráð milli hins efnislæga, hins líkamlega og hins ljóðræna. Saman hefur þessi sterki hópur listafólks skapað heim kynjavera þar sem dansinn, myndlistin og tónlistin mynda sterka heild.

  • 7.
    • OKT 2010
  • 8.
    • OKT 2010
  • 17.
    • OKT 2010
  • 24.
    • OKT 2010
  • 7.
    • NÓV 2010
  • 14.
    • NÓV 2010
  • 21.
    • NÓV 2010

Gagnrýni


  • Morgunblaðið, 11. okt. 2010. Margrét Áskelsdóttir
    • Samspil tónlistar, hreyfinga og sterks andardráttar gerði það að verkum að áhorfendur drógust gjörsamlega inn í verkið og gleymdu janfvel sjálfir að anda
    • Transaguania – Into Thin Air er á sama tíma fallegt, ógnvekjandi, fyndið og alvarlegt. Verk sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
  • Fréttablaðið, 9. okt. 2010. Sessleja G. Magnúsdóttir
    • „Dansararnir stóðu sig vel og unnu sem einn líkami, ein lífræn heild.“
    • „Að horfa á Transaquania var eins og að verða vitni að sköpun heimsins sem og tortíminug hans, ekki í gegnum frásögn heldur að vera viðstaddur hinn eiginlega atburð.“
    • „..heildstætt verk bæði hvað varðar samspil listformanna sem og heildaruppbyggingu verksins. Það fangar athygli áhorfandans strax í upphafi og heldur henni óskiptri allt til loka...“
  • Pressan.is, 9. okt. 2010. Bryndís Schram
    • "Mér fannst þetta ægifögur upplifun sem ég hefði ekki viljað missa af. Frábærir listamenn koma þarna að verki. Erna er frumkvöðull sem á vart sinn líka."
    • "Dansararnir sýna ótrúlega leikni, allir sem einn og einn sem allir. Það er ánægjulegt að sjá hópinn svona samstilltan og kraftmikinn."
  • Grapewine, October 2010. A. Rawling
    • „Early, gripping success in ‘Transaquania: Into Thin Air’ was evident as the dragged (drugged?) somethings reached their trembling forms toward heaven, and then collapse to the ground to lay still and then swarm in their skins and wombs..... Out of this opening sequence follows a series of stunning acts. All nine somethings proceed through multiple metamorphoses to reveal their alien selves, barely alive and barren. The consistently skin-tight flesh-toned costumes cause a dizzying, perfect incongruence with the asensual choreography — expert execution of the artistic team’s collective vision to explore human reality in a post-water existence. “
    • „Into Thin Air“ is a work crafted of rare and challenging vision to raise questions and concerns about awareness, to propose dialogue and inner monologue around how now is and how else it may be.“
  • Gagnrýnandi frá www.livecity.com
    • „Íslendingar eru ólíkir öðrum norðurlandabúum, þeir eru langt frá því að vera kaldir eða skemmtanaglaðir, þeim er í blóð borin ákveðin innri angurværð sem er fylgifiskur þess að búa á Íslandi. Þeir bera hinsvegar angurværðina með mikill ró sem gerir þá hlýja einstaklinga. Transaqunia – Into Thin Air er sýning sem er allt annað en köld, hún er spennandi, dýrsleg, kröftug, líkamleg og úthugsuð.“
    • Sami gagnrýnandi var einnig orðlaus yfir færni dansara flokksins og þeirri innri orku sem þeir búa yfir.
  • Gagnrýnandi frá Teatridi Cartapesta sagði
    • „Transaquania er sterk og tilfinningarík upplifun. Íslenski dansflokkurinn ásamt höfundum sýningarinna, þau Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Garbríela Friðriksdóttir sköpuðu algerlega einstakt andrúmsloft fyrir áhorfendur“.
 

Af flickr