Heilabrot
Frumsýnt 4. mars 2011 - partur af Sinnum Þrír
Danshöfundar: Brian Gerke og Steinunn Ketilsdóttir ásamt dönsurum
Tónlist: LeAnn Rimes, Nina Simone, Phil Collins og fleiri
Leikmynd: Brian Gerke, Steinunn Ketilsdóttir
Búningar: Elín Edda Árnadóttir
Ljósahönnun: Aðalsteinn Stefánsson
Aðstoðarmaður danshöfunda: Gianluca Vincentini
„Ertu að bíða eftir því að eitthvað gerist? Ó, ertu að bíða eftir einhverju frábæru? Einhverju stórkostlegu?“
Hvað með stefnumót við fjóra einstaklinga þegar raunveruleiki þeirra og óraunveruleiki rekast á? Með átökum og samvinnu skapa þau histerískan, ofsafenginn atburð sem snýst um sjálfan sig og fléttast inn og útúr fókus. Kabarett Jesú Krists mætir glamúr stílista, ýkt tilfinningalegt ástand persónanna vex og þau ráðast á hvort annað. Börn, ástarsorg, sjálfsálit og sjálfsvíg; lífið er fallegt, lífið er ógeðsleg óreiða sem verður að brjóta niður og greiða úr. Hlífðarlausir einstaklingarnir mana sig upp í að halda áfram. Geta þau fundið vonina í gegnum óreiðuna?
Deila á Facebook- 4
- mars 2011
- 5
- mars 2011
- 6
- mars 2011
- 8
- mars 2011
- 9
- mars 2011
- 11
- mars 2011
- 12
- mars 2011
- 13
- mars 2011
Gagnrýni
- Fréttablaðið, 9. Mars 2011. Sesselja G Magnúsdóttir
- "Verkið býr yfir beittri samfélagsgagnrýni sem birtist ekki síst í samspili texta og athafna."
- "Dansararnir áttu góða spretti hver í sinni persónu, ekki síst Aðalheiður Halldórsdóttir, enda bauð verkið upp á djúpa karaktersköpun."
- Pressan, 10. Mars 2011. Bryndís Schram
- "Efnið er dregið beint úr hversdagsleikanum, hugleiðingar um tilgang lífisins í gerviveröld og leitinni að hamingju. Meinfyndið verk sem vekur upp áleitnar spurningar um tilganginn með þessu öllu saman."
- "Þau (dansararnir) fara feikilega vel með hlutverk sín og koma öllu til skila – vonbrigðum, sorgum, ótta og vonleysi í hörðum heimi."
- Morgunblaðið, 8. Mars 2011. Margrét Áskelsdóttir
- "Efnið er skemmtilegg og kímlegt en snertir jafnfram við áhorfandanum á grátbroslegan hátt."
