Framkvæmdastjóri | [ Íd ] Íslenski dansflokkurinn

Fréttir

Framkvæmdastjóri

Framkvæmdastjóri

minni_MG_9817

Úr No Tomorrow eftir Ragnar Kjartansson og Margréti Bjarnadóttur. Mynd: Jónatan Grétarsson

Íslenski dansflokkurinn óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa til að stýra daglegri starfsemi dansflokksins.

Framkvæmdastjóri heyrir undir og vinnur náið með listrænum stjórnanda flokksins. Í boði er mjög áhugavert starf í lifandi og skapandi umhverfi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Fjármálaráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfssvið

  • Ábyrgð og umsjón með fjármálarekstri flokksins.
  • Samskipti við íslensk stjórnvöld sem og innlenda og erlenda samstarfsaðila.
  • Ábyrgð og umsjón með starfmannamálum.
  • Samninga- og skýrslugerð.
  • Áætlanagerð og eftirfylgni áætlana sem og vinna við stefnumótun.
  • Umsjón með erlendum og innlendum samstarfsverkefnum.
  • Fjáröflun og umsjón með umsóknum vegna styrkveitinga.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Haldgóð reynsla af fjármálum, stjórnun og rekstri.
  • Reynsla af starfi á sviði menningar og lista mikill kostur.
  • Góð kunnátta í íslensku- og ensku sem og geta til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Leiðtogahæfileikar sem og frumkvæði og metnaður í starfi.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samningatækni.
  • Áhugi á menningu og listum.

Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar 2018 –> SÆKJA UM HÉR

Listrænn stjórnandi er forstöðumaður dansflokksins. Aðsetur Íslenska dansflokksins er í Borgarleikhúsinu. Íslenski dansflokkurinn hefur byggt upp nafn og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum árum. Flokkurinn tekur reglulega þátt í margvíslegum samstarfsverkefnum, jafnt hér á landi sem á alþjóðlegum vettvangi.

Íslenski dansflokkurinn er sjálfstæð ríkisstofnun. Hlutverk hans er að sýna listdans, stuðla að nýsköpun í innlendri listdanssmíði og vera vettvangur til eflingar og framþróunar danslistar á Íslandi. Flokkurinn leggur áherslu á að kynna íslenskum áhorfendum metnaðarfull verk og mikilvægustu höfunda í nútímadansi.

sadsad