Liminal States – Órætt Algleymi
Liminal States býður okkur að hverfa frá hinni sjónrænu upplifun á tilveru okkar og að líkamnaðri reynslu af veruleikanum sem lítur að orku og skynjun; inn í millibilsástand þar sem upplifun og skynjun eiga sér stað á mörkum meðvitundarinnar. Verkið beinir athygli að samtali við viss innri rými sem eru ótengd persónueinkennum, þar sem hægt er að upplifa ástand umbreytingar og það sem kalla má órætt líkamlegt alflæmi. Verkið er í raun hugleiðsla um hina óáþreifanlegu en kraftmiklu undirstrauma í tilveru okkar.
Danssýning eftir danshöfundinn Margréti Söru Guðjónsdóttur.
Frumsýnt 1. nóvember á stóra sviði Borgarleikhússins.
Liminal States byggir á áralöngum rannsóknum höfundar á ólíkum stigum og umbreytingum skynjunar. Verkið er lokahluti trílógíu þar sem Margrét Sara fæst við hugmyndir um öfl sem verka á okkur utan við hinn meðvitaða huga. Verkin þrjú sem trílógían spannar eru; Pervasive Magnetic Stimuli (2018), Boundless Ominous Fields (2024) og Liminal States (2024).
Tónlist verksins var upphaflega samin af Peter Rehberg fyrir dansverkið Pervasive Magnetic Stimuli (2018). Sýningin Liminal States er gerð við sömu tónsmíð til heiðurs áratuga langri samvinnu tónskáldsins og Margrétar Söru allt til fráfalls Peters árið 2021. Tónlistin verður einnig gefin út af útgáfufyrirtækinu Editions Mego 2025 með for-útgáfu við frumsýningu Liminal States á Íslandi þann 1.nóvember 2024.
Undanfarin 15 ár hefur Margrét Sara tekist listrænt á við áhrif samfélagslegra pólitískra stefna á líkama okkar og innra líf. Hún hefur því tengt þróað nýja kategoríu afsviðsdansi og danstækni sem byggð er á rannsóknum á djúpvöðva slökun sem hún kallar FULL DROP og gengur út á speglun og losun á þessum utanaðkomandi áhrifum. Í mótvægi við kröfur nýfrjálshyggjunnar kennir aðferðin nýjar leiðir að annars konar uppsprettu af lífsorku, styrk, dansi, nálgun og útkomu. Á forsendum þessara fræða opnast gátt inn í undirmeðvitund þar sem rými fyrir gagnrýna endurskoðun á innri og ytri veruleika býr til tengingu við nýja þekkingu og upplifun af okkur sjálfum. Í verkum Margrétar Söru nýta dansararnir aðferðafræði hennar FULL DROP til þess að nálgast ólík líkamleg meðvitundarstig. Þeir þróa færni til að vinna með líkamlegt ástand þar sem næmni og hlustun er örvuð á öflugan og hárfínan hátt. Sviðsverk hennar taka beinan þátt í umræðu samtímans um aktivisma, feminisma, gagnvirk tengsl og heilun.
Margrét Sara Guðjónsdóttir
Margrét Sara Guðjónsdóttir stundaði dansnám í Hollandi og fluttist eftir það til Berlínar þar sem hún starfaði á eigin vegum sem danshöfundur og dansari með ýmsum sviðslistamönnum í Evrópu á árunum 2001-2014. Þar á meðal með Jan Fabre / Troubleyn, Giselle Vienne, Constanza Macras / Dorkypark, Ernu Ómarsdóttur og Jóhanni Jóhannssyni, Angelu Schubot, Nir De Volf/Total Brutal, Jared Gradinger. Margrét Sara stofnaði ásamt danshöfundinum Sveinbjörgu Þórhallsdóttur framleiðslufyrirtækið Panic Productions í Reykjavík sem skapaði vettvang fyrir samstarfssýningar á Íslandi og víðar með alþjóðlegum listamönnum á árunum 2004-2009.
Margrét Sara hefur allan sinn feril ferðast með og sýnt eigin dansverk og notið stuðnings og samstarfs menningarstofnana og listahátíða um alla Evrópu. Sem danshöfundur í gegnum árin hefur hún einnig átt náið samstarf við fjölda stærri sviðslista húsa í Evrópu. Hún var meðal annars fengin til að setja upp verk fyrir Cullberg ballettinn í Svíþjóð, Les Grandes Traversees Festivalið í Bordeaux, Þjóðaróperuna í Stokkhólmi, og var í listrænu stjórnendateymi fyrir fjórar útgáfur af listamannarekna festivalinu Flutgraben Performances í Berlín 2019-2020. Á sínum ferli hefur Margrét Sara dansað og sýnt eigin verk í fjölda leikhúsa Berlínar borgar og jafnan komið heim til Íslands árlega til að sýna sín verk á Reykjavík Dance Festival og LÓKAL. Henni var boðið að sýna verk sín reglulega við Sophiensale-leikhúsið í Berlín á tímabilinu 2014-2018. Hennar nýjasta dansverk var frumsýnt á alþjóðlega dansfestivalinu Side Step festival í Zodiak leikhúsinu í Helsinki fyrr á árinu, 2024.
Fjallað hefur verið um verk Margrétar Söru í bæði listrænu og akademísku samhengi og auk eigin verka hefur hún átt í þverfaglegu samstarfi síðastliðin ár við myndlistar- og kvikmyndagerðarkonuna Huldu Rós Guðnadóttur og fiðluleikarann og tónskáldið Guðnýju Guðmundsdóttur í Berlín, hljóð- og sviðslistakonuna Esther Mugambi í Amsterdam og Brussel, Susan Kozel heimspekiprófessor í Malmö. Auk þess á hún í áframhaldandi samstarfi við finnsku danslistamennina Karolina Ginman og Marlon Moilaned í Helsinki auk sellóleikarans og tónskáldsins Lucy Raylton. Margrét Sara vann með enska tónskáldinu Peter Rehberg frá 2010 til andláts hans 2021.
Höfundur

Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd