Prufur fyrir dansara í Reykjavík | [ Íd ] Íslenski dansflokkurinn

Fréttir

Prufur fyrir dansara í Reykjavík

Prufur fyrir dansara í Reykjavík

GG Jónatan 1Íslenski dansflokkurinn býður dönsurum með menntun og reynslu í samtímadanstækni, spuna og sviðsframkomu í prufur fyrir sýningarárin 2018-2020. Verkefnaráðning og/eða árssamningur í boði. Við leitum að skapandi, fjölhæfum og sjálfstæðum dönsurum  með listræna sýn.

Vinsamlegast athugið að þetta eru ekki opnar prufur.
Umsóknir skulu berast á íslensku eða ensku ásamt ferilskrá, kynningarbréfi, ljósmynd og video (hámark 5 mínútur). Efnið skal vera nýtt. Vinsamlegast sendið umsóknina til id@id.is.

 Umsóknarfrestur er 12. Ágúst 2018.
Þau sem fá boð í prufurnar fá boðsbréf sent 17. ágúst á netfangið sem gefið er upp í umsókninni.
Prufurnar fara fram 25. og 26. ágúst í æfingasal Íslenska dansflokksins í Borgarleikhúsinu.

Íslenski dansflokkurinn er framsækinn samtímadansflokkur skipaður úrvalsdönsurum í hæsta gæðaflokki. Dansflokkurinn er sjálfstæð ríkisstofnun með aðsetur í Borgarleikhúsinu.
Íslenski dansflokkurinn leggur áherslu á að kynna íslenskum áhorfendum metnaðarfull verk, innlend sem erlend og hefur unnið með mörgum fremstu danshöfundum Evrópu auk þess að leggja rækt við íslenska danssköpun.
Meðal þeirra erlendu danshöfunda sem hafa unnið með dansflokknum eru Rui Horta, Jirí Kylián, Jo Strömgren, Richard Wherlock, Itzik Galili, Stijn Celis, Rami Be’er, Ina Christel Johannessen, Alexander Ekman, Roberto Olivan, Andre Gingras, Alan Lucien Öyen, Damien Jalet, Anton Lachky, Ohad Naharin,  Jérôme Delbey og Johan Inger. Af fjölmörgum íslenskum danshöfundum má nefna Ernu Ómarsdóttur, Helenu Jónsdóttur,Valgerði Rúnarsdóttur, Láru Stefánsdóttur, Sögu Sigurðardóttur og tvíeykið Steinunni Ketilsdóttur og Brian Gerke.
Íslenski dansflokkurinn hefur öðlast viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum árum og hefur flokknum verið boðið að sýna í mörgum af helstu leikhúsum og hátíðum erlendis.
Íslenski dansflokkurinn leggur áherslu á samstarf við aðrar sviðslista- og menningarstofnanir sem og samvinnu við listafólk úr öðrum listgreinum. Flokkurinn er einnig virkur þátttakandi í alþjóðlegum upplýsinga- og samstarfsnetum.
Íslenski dansflokkurinn sýnir reglulega í Borgarleikhúsinu og heldur einnig sýningar utan höfuðborgarinnar. Þá stendur hann fyrir ýmsum fræðsluverkefnum til að kynna og efla áhuga ungs fólks á danslistinni.

Vinafélag Íd

Vilt þú taka þátt í því að styðja við bakið á framþróun íslenskrar dansmenningar?

Íslenski dansflokkurinn hefur sett á legg vinafélag fyrir alla þá sem  láta sig starfsemi dansflokksins varða.
Félagið mun standa fyrir opnum æfingum, kynningum á verkum, umræðum eftir sýningar og árlegum kynningarkokteil.
Allir geta orðið meðlimir í Vinafélaginu og hægt er að skrá sig með því að senda póst á vinafelag@id.is.

Árgjald Vinafélagsins er 3.500 kr.

sadsad