ROOM 4.1 LIVE
Vincent hefur fengið nóg af áreiti hversdagsins og lætur leggja sig inn á sjúkrahús í von um langþráðan frið. Friðurinn er þó víðs fjarri þar sem læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir sjúklingar, hver öðrum sérstakari, vaða inn og út úr sjúkrastofunni. Erillinn í lífi Vincents er meiri en nokkru sinni fyrr. Í sýningu Borgarleikhússins er áhorfendum boðið á tökustað þar sem verið er að taka upp þætti um Vincent og upptökunum er varpað á stóra skjái. Þar má sjá hvernig brögðum og brellum er beitt þegar sviðsmyndinni/sjúkrastofunni, er snúið á alla kanta til að framkalla trylltar hugmyndir leikstjórans. Á sama tíma fara undarlegir hlutir að gerast á tökustað, hugmyndir fá vængi og fara á stjórnlaust flug.
Áhorfendur dragast hægt og rólega inn í sjálfa atburðarásina. Við lofum ótrúlegri leikhúsupplifun – þetta hafið þið aldrei séð áður. ROOM 4.1 er tilnefnt til Reumert-verðlaunanna, sviðslistaverðlauna Danmerkur. Árið 2012 sýndi Borgarleikhúsið stjörnusýningu Kristjáns BLAM! við miklar vinsældir. BLAM! var heiðruð með Reumert-verðlaununum árið 2012 og Grímunni árið 2013.
ROOM 4.1 LIVE byggir á þáttaröðinni ROOM 4.1 þar sem Kristján Ingimarsson Company hefur gefið sviðslistum vettvang á alnetinu. Leikhúsið leitast við að nálgast áhorfendur hvar svo sem þeir kunna að vera, í leikhúsinu eða á netinu heima hjá sér.





“Kristján Ingimarsson’s technical marvel of an acid trip is breathtakingly beautiful.” Sceneblog




“Masterfully executed.” iScene




Kulturkongen
Höfundur og leikstjórn: Kristján Ingimarsson
Leikmynd: Kristian Knudsen, Charlotte Calberg og Kristján Ingimarsson
Búningar: Charlotte Calberg
Lýsing: Karl Sørensen/Ingi Bekk
Tónlist og hljóðmynd: Lasse Munk
Dans og sviðshreyfingar: Kristján Ingimarsson, Thomas Bentin, Noora Hannula, Kajsa Bohlin ásamt öðrum þátttakendum í sýningunni.
Leikgervi: Ida Seidelin
Leikarar: Arnar Dan Kristjánsson, Björn Stefánsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Kristján Ingimarsson, Saga Garðarsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Inga Maren Rúnarsdóttir (ÍD), Þyri Huld Árnadóttir (ÍD), Kajsa Bohlin (KIC) og Noora Hannula (KIC)
ROOM 4.1 LIVE er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Íslenska dansflokksins og KICompany.
Frumsýning