Forsíða
Facebook síðan okkar Flickr myndirnar okkar YouTube myndböndin okkar Hafðu samband English version

Minus 16

Frumsýnt 4. febrúar 2012

Danshöfundur: Ohad Naharin

Tónlist: Dean Martin, Yma Sumac, Rolley Polley, Dick Dale, Tractor’ s Revenge, Ohad Naharin, James Bowman, the Academy of Ancient Music, Marusha, og Chopin

Ljósahönnun: Avi Yona Bueno

Búningahönnun: Ohad Naharin

Umsjón með búningum, leikmunum og sviðsmynd: Elín Edda Árnadóttir

Æfingastjóri: Osnat Kelner

Aðstoðarmaður æfingastjóra: Michal Sayfan

Minus 16 er eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin og hefur farið sigurför um heiminn. Minus 16 er glettið og beinskeitt verk sem brýtur niður múra milli flytjenda og áhorfenda og spannar skalann frá Dean Martin til cha-cha-cha, frá techno poppi til hefðbundinnar þjóðlagatónlistar Ísraela.

„Þetta er ekki nýtt verk, heldur snýst þetta meira um endursmíð. Mér þykir gaman að taka hluta eða kafla í verkum sem til eru og endurvinna það efni, endurskipuleggja og skapa þann möguleika að sjá verkið frá öðru sjónarhorni. Slíkt ferli kennir mér alltaf eitthvað nýtt um verkin mín og mína samsetningu”.

Ohad Naharin er einn fremsti nútímadanshöfundum heims í dag. Verk hans hafa verið flutt af mörgum stærstu dansflokkum í heimi og hefur hann hlotið mörg alþjóðleg verðlaun fyrir framlag sitt í þágu danslistarinnar. Ohad var skipaður listrænn stjórnandi Batsheva hópsins í Ísrael árið 1990 og undir stjórn hans hefur hópurinn vaxið að vegsemd og er í dag einn virtasti dansflokkur veraldar.

Uppsetning Minus 16 er styrkt af Aurora velgerðasjóði.

Groβstadsafari eftir Grímuverðlaunahafann Jo Strömgren verður til sýningar sama kvöld. Verkið fékk frábærar viðtökur í fyrra þegar það var sýnt sem hluti af dansveislunni Sinnum Þrír.

  • 4.
    • FEB 2012
  • 12
    • FEB 2012
  • 19
    • FEB 2012
  • 22
    • FEB 2012
  • 26
    • FEB 2012
  • 3
    • MARS 2012
  • 10
    • MARS 2012
  • 16
    • MARS 2012

Gagnrýni


  • DV, 6. Febrúar 2012. Kristjana Guðbrandsdóttir
    • Mögnuð lífsreynsla
    • Útkoman var stórglæsileg og kom virkilega á óvart.
    • Ég hef aldrei upplifað aðrar eins tilfinningar á danssýningu. Þetta var byltingarkennt. Verkið er gríðarlega mikilvægt og skilur eftir sig reynslu og skilaboð í undirmeðvitundinni sem er frek.
  • Fréttablaðið, 5. Febrúar 2012. Sesselja G. Magnúsdóttir
    • Dansverkið var gamansamt og kraftmikið.
    • Verkið bar þess merki að hér var á ferðinni firnafær danshöfundur, reyndar svo mjög að í lokin var svekkjandi að verkið skyldi ekki vera lengra.
    • Minus 16 var ögrandi en skondið verk sem vekur upp löngun í meira.
  • Djöflaeyjan, 22. Febrúar 2012. Símon Örn Birgisson
    • Ég hvet fólk til að fara, bæði er þetta mjög sérstök upplifun fyrir þá sem ekki þekkja og mundu ekki fara á Íslenska dansflokkinn venjulega. Ég myndi segja að þetta kvöld er mjög vel til þess fallið að kynnast flokknum, kynnast þessu formi og upplifa verk sem er með því besta sem ratar á fjörur manns í dansheiminum.
  • Listræninginn, 3. Mars 2012. Jórunn Sigurðadóttir
    • Þetta er ein sú skemmtilegasta danssýning sem ég hef farið á.
  • Viðskiptablaðið, 1. Mars 2012.
    • Dansflokkurinn sýnir styrk sinn í báðum verkum og heillar áhorfendur með tækni, túlkun og gleði sem skín í gegnum dansinn. Fyrir þá sem ekki eru vanir að fylgjast með verkum dansflokksins er þetta kjörinn staður til að byrja.
 

Af flickr