
Í AIŌN bjóða Erna Ómarsdóttir danshöfundur og Anna Þorvaldsdóttir tónskáld áhorfendum upp á töfrandi heim þar sem tónlist og dans mæstast á óvanalegan hátt og dansarar Íslenska dansflokksins og hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitarinnar renna saman í eitt.
Erna og Anna eru báðar búnar að stimpla sig inn á heimsvísu sem miklir áhrifavaldara hvor í sinni listgrein. Anna Thorvaldsdóttir er staðarskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hafa verk hennar verið flutt af fremsu hljómsveitum heims, ma.a. Fílharmóníusveitunum í Berlín, New York og Los Angeles. Erna Ómarsdóttir er listdansstjóri Íslenska dansflokksins og hefur hún hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín sem sýnd hafa verið á helstu listahátíðum og leikhúsum í Evrópu og víðar.
AIŌN er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar.
AIŌN var heimsfrumsýnt 24. maí 2019 í Gautaborg af Íslenska dansflokknum og Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar.
Frumsýning 21. október í Hörpu.


Frá æfingum með Sinfóníuhljómsveit Íslands
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2024/02/Erna-Omarsdottir-lowres-265x390.jpg)
Erna Ómarsdóttir
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2025/07/Anna-Thorvalds-265x390.jpg)
Anna Þorvalds

















Hugmynd og listræn stjórnun:
Erna Ómarsdóttir og Anna Þorvaldsdóttir
Danshöfundur:
Erna Ómarsdóttir
Tónlist:
Anna Thorvaldsdóttir
Hljómsveitarstjóri:
Anna-Maria Helsing
Videoverk:
Pierre-Alain Giraud og Valdimar Jóhannsson
Ljós:
Valdimar Jóhannsson
Aðstoðardanshöfundur:
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
Búningar:
Agnieszka Baranowska
Dansarar:
Ásgeir Helgi Magnússon, Charmene Pang, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Shota Inoue, Sigurður Andrean Sigurgeirsson & Una Björg Bjarnadóttir.
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd