
Í Black Marrow birtist tær máttur líkamans sem reynir að lifa af í kæfandi heimi þar sem eðlishvötin hefur verið iðnvædd. Black Marrow var upprunalega samið fyrir Chunky Move, einn helsta nútímadansflokk Ástralíu, og sýnt á Alþjóðlegri Listahátíð Melbourne árið 2009. Verkið birtist hér í nýrri mynd, sérstaklega útfært fyrir og með Íslenska dansflokknum.
Við endurtökum leikinn og sýnum aftur verðlaunasýninguna BLÆÐI: Obsidian Pieces 30. ágúst og 6. september.
Ásækið kventríó, upphaflega samið fyrir Louvre listasafnið í París, sem sækir innblástur sinn í hið töfrandi eðli gyðjustyttnanna í Marly garði safnsins.
Tvö brot úr hinu geisivinsæla verki Babel(words):
Sin er nautnafullur og kraftmikill dúett sem sækir innblástur sinn í goðsagnirnar um hið upprunalega par og þeirra sameinuðu og sundruðu krafta.
The Evocation er nútíma túlkun á Zikr, athöfn innan súfisma, þar sem endurtekning á einu orði er notað til að varpa burt álögum.
Danshöfundarnir þrír hafa allir sett svip sinn á dansheiminn í dag með verkum sínum. Damien Jalet hefur t.a.m. samið verk fyrir Parísar Óperuna, Skoska Dansleikhúsið, Louvre safnið í París og Íslenska dansflokkinn við mjög góðan orðstír og unnið með stórstjörnum úr listaheiminum á borð við Marinu Abramovic, Bernhard Willem og Christian Fennesz. Erna Ómarsdóttir er einn virtasti dansari og danshöfundur Íslendinga. Hún hefur unnið með nokkrum fremstu dans- og sviðlistahópum Evrópu og starfar núna sem listrænn ráðgjafi Íslenska dansflokksins. Sidi Larbi Cherkaoui er einn sá allra eftirsóttasti danshöfundur heims í dag og hefur meðal annars samið fyrir Parísar Óperuna, Cedar Lake í New York og Konunglega danska ballettinn. Hann tók nýverið við starfi listræns stjórnanda Flæmska Konunglega Ballettsins.









Danshöfundur:
Karol Tyminski
Tónlist:
Valdimar Jóhannsson
Ljósahönnun:
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tækniráðgjöf:
Valdimar Jóhannsson
Búningahönnun:
Agnieszka Baranowska
Dansarar:
Ásgeir Helgi Magnússon, Halla Þórðardóttir, Hannes Þór Egilsson, Karol Tyminski & Þyri Huld Árnadóttir.
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd