
Í sköpunarferlinu vann Lachky náið með dönsurum Íslenska dansflokksins enda tekst honum að laða fram sérkenni hvers dansara og flétta þeim sérkennum saman við persónulegan, hnyttinn og duttlungafullan stíl sinn.
„Hver dansari er í mínum augum eins og teiknimyndafígúra. Ég reyni að sjá þau eins og þau eru, þó með mínum eigin augum“ segir Lachky. „Annar mjög mikilvægur þáttur í vinnslu verksins er líkamlegi þátturinn, sem endurspeglar þéttleika og kraft líkamans, fegurð dansins í sínum margbreytileika en um leið í einfaldleika sínum.
Anton Lachky og dansarnir fengu Grímuna sem danshöfundar ársins 2011.
Frumsýnt 30. september 2011.







Danshöfundur:
Anton Lachky í samvinnu við dansara Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon, Cameron Corbett, Emilía Benedikta Gísladóttir, Hannes Þór Egilsson, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir & Þyrí Huld Árnadóttir
Tónlist:
Sálumessa eftir Guiseppe Verdi, Sálumessa í D moll eftir Luigi Cherubini
Ljósahönnun:
Aðalsteinn Stefánsson
Aðstoðarmaður danshöfundar:
Elenore Valere
Æfingastjóri:
Tinna Grétarsdóttir
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd