Íslenski dansflokkurinn 50 ára | [ Íd ] Íslenski dansflokkurinn

Íslenski dansflokkurinn 50 ára


Íslenski dansflokkurinn fagnar 50 ára afmæli á árinu.
Laugardaginn 29. apríl verður blásið til afmælisendurvinnslugalaveislu í Borgarleikhúsinu,
uppskeruhátíðar þar sem við munum fagna fortíð, nútíð og framtíð.

Veislan hefst kl. 19.00 með hljóð- og myndinnsetningum á minni sviðum hússins. Kl. 20.00 hefst svo formleg dagskrá á Stóra sviðinu þar sem dansinn verður allsráðandi með öllum sínum óteljandi formum og tilfinningatengslum.
Minningar finna sér leið í dansi, við fögnum hringrásarkerfi áhrifa og sögum úr hversdagslífi dansara. Gömul og ný spor verða stigin og við getum lofað því að það verður allt í senn grátið og hlegið. Galaveislan endar svo með dansleik í forsal leikhússins þar sem við dönsum saman inn í nóttina.

Það væri okkur sönn ánægja ef þú hefur tök á að fagna þessum tímamótum með okkur. Líta með okkur yfir farinn veg og fagna því ótrúlega starfi sem hefur verið unnið í gegnum árin og heiðra listamenn og aðra sem hafa komið við sögu. En um leið að horfa með okkur fram á veginn og dreyma með okkur stóra drauma fyrir næstu 50 ár í sögu Íslenska dansflokksins.

Áhugasamir geta bókað miða á tix.is en það er ókeypis aðgangur á viðburðinn á meðan húsrúm leyfir.

Við hlökkum til að fagna með þér!

Með dansandi kærum kveðjum,
Íslenski dansflokkurinn & Afmælisnefndin
(Erna Ómarsdóttir, Saga Kjerúlf Sigurðardóttir og Valgerður Rúnarsdóttir)

sadsad