Íslenski dansflokkurinn mætir dönsurum úr street dance-senunni
Í þessu kraftmikla verki danshöfundarins Hoomans Sharifi mætast tveir ólíkir hópar með ólíkan bakgrunn — street-dansarar og samtíma- dansarar. Hvor hópur á sér sinn einstaka ryþma og tungumál. Stefnumót þeirra einkennist af forvitni og sameiginlegri ástríðu fyrir hreyfingu. Þau nálgast hvert annað af varfærni og yfirstíga landamæri með líkamstjáningu sinni. Þannig skapast rými þar sem einstaklingnum er fagnað og fjölbreytileikanum er tekið opnum örmum. Reynslan er ný af nálinni fyrir alla dansarana, þenur út mörk og víkkar sjóndeildarhringinn.
Tambur-tónlist Arash Moradi er sameiningarafl í þessum menningarlega samruna, bæði fyrir dansarana og áhorfendur, og lifandi tónlistarflut- ningur hans fyllir andrúmsloftið af ókunnugum en hrífandi laglínum.
Kraftmikil danssýning eftir danshöfund Hooman Sharifi
Lengd: 90 mín
Frumsýnt 7. júní á Nýja sviðinu Borgarleikhússins
Danshöfundurinn Hooman Sharifi (NO) fæddist í Teheran árið 1973 og fluttist einn síns liðs til Noregs 15 ára gamall. Dansáhugi hans vaknaði með hip hop dansi á táningsaldri en um tvítugt hóf hann nám í klassískum ballett og módern dansi. Hann útskrifaðist síðar sem danshöfundur frá Listaháskólanum í Osló og hefur, í listsköpun sinni, áhuga á að vinna á mörkum dans, leikhúss og myndlistar. Árið 2000 stofnaði Sharifi eigin dansflokk, Impure Company, þar sem hann hefur lagt áherslu á pólitíska nálgun og félagslega þátttöku, en verkin spanna nú yfir 30 talsins. Með líkamlega krefjandi, áköfu og kröftugu, hreyfitungumáli kannar Sharifi tilfinningar og uppbyggingu á bak við valdapíramída, völd, stjórnmálakerfi og ofbeldi, sem hann framkallar með nákvæmum hreyfingum og sviðsáhrifum.
Danshöfundur & listrænn stjórnandi
Hooman Sharifi
Tónlist:
Arash Moradi
Lýsing og búningar:
Hooman Sharifi
Listrænn ráðgjafi:
Brynja Pétursdóttir
Ljósmyndir:
Sunna Ben
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd