
Órafmagnaður hljómur sem ferðast í risastóru rými leiksviðsins. Ballettinn er yfirlýsing um hrynjandi, hreyfingu, hljómfall og óræðar tilfinningar. Hugleiðingar um þokka, innri kraft og list dansarans. Talning og rými. Hvernig hljóð og hljóðfærasláttur ferðast. Hvernig hljómfall vekur tilfinningu. Tónlist Bryce Dessner er samin sérstaklega fyrir þessar tilraunir. Saffó var Ragnari og Margréti hugleikin við samningu verksins. Textinn í verkinu hefur samt aðeins eina hendingu frá hörpuleikaranum frá Lesbos, hann er að mestu unninn upp úr skáldsögunni Point de Lendemain eða Dagur ei meir eftir Vivant Denon. Sagan er munúðarfullt ofurljóðrænt skáldverk frá ofanverðri 18. öld. Verk um manndómsvígsluna sem fólgin er í því að verða alvöru elskhugi á þeirri þokukenndu tíð. Þetta lítur kannski út eins og einhver Calvin Klein tískusýning en þetta er rókókó, á meira skylt við Watteau.
No Tomorrow hefur fengið mikið lof frá bæði gagnrýnendum og áhorfendum og hlaut Grímuverðlaunin 2017 fyrir Danshöfunda ársins og Sýningu ársins en það var í fyrsta skipti í sögu Grímunnar sem dansverk fékk titilinn sem Sýning ársins.
Grímuverðlaunaverkið No Tomorrow eftir Ragnar Kjartansson, Margréti Bjarnadóttur og Bryce Dessner frumsýnt á listahátíð Íslenska dansflokksins FÓRN.





Konsept og kóreógrafía:
Ragnar Kjartansson & Margrét Bjarnadóttir
Tónlist:
Bryce Dessner
Dansarar (upprunalegir):
Aðalheiður Halldórsdóttir, Anais Barthe, Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Halla Þórðardóttir, Hebar Eir Kjeld, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir & Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
Aðrir dansarar:
Védís Kjartansdóttir & Þyri Huld Árnadóttir
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd