
Sum orð eiga sér aðdraganda, eins og enska orðið sacrifice sem sprottið er af latneska orðinu sacrificium – en það er aftur myndað af orðinu sacer annars vegar (hversdagslegur hlutur gæddur yfirnáttúrulegu afli) og hins vegar af sögninni facere; „að gera“. Og á tungu Tarahumara-þjóðarinnar í Mexíkó – sem fer allar sínar ferðir á hlaupum – er orðið yfir dans og vinnu eitt og hið sama. Engin orð ná þó utan um þá listrænu tilbeiðslu sem fram fer í helgidómnum. Hér er það athöfnin sjálf sem skiptir máli; sköpunin, tilbúningurinn. Laborare est orare. En helgimyndirnar sem fæðast eru ekki bara niðurstaða af uppgreftri og rannsóknum á liðnum tíma. Athafnirnar einskorðast ekki heldur við tignun horfinna gyðja og guða, eða þá alvald á borð við Jave, hinn hviklynda drottinn sem fyrstur guða setti dauðlegum mönnum lög. Í þessum helgu véum er verið að fást við síbreytilegan efnisheiminn – manninn þar með – og upphafningu hvunndagslegra, jafnvel ómerkilegra hluta, í von um að mega tengja við frumstæðan heim á skilum lífs og dauða.







Listræn stjórnun:
Erna Ómarsdóttir & Valdimar Jóhannsson
Kóreógrafía:
Erna ómarsdóttir í samstarfi við dansara
Tónlist:
Valdimar Jóhannsson ásamt Sofiu Jernberg
Lýsing:
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Búningar:
Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Hár og slöngur:
Dies Irae
Búningur Sofiu Jernberg:
Union of the North
Kleinuhringur:
Union of the North
Texti:
Bjarni Jónsson og Friðgeir Einarsson
Förðun:
Fríða María Harðardóttir
Flytjendur:
Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon, Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Friðgeir Einarsson, Halla Þórðardóttir, Hannes Þór Egilsson, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Sigtryggur Berg Sigmarsson & Sofia Jernberg
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd