This grace | [ Íd ] Íslenski dansflokkurinn

Verkefnaskrá

This grace

this grace 2_minni

THIS GRACE

Tímasetning: 2. maí frá kl 17:30-20:00
Staðsetning: Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.
Verkið verður flutt inni í innsetningu listakonunnar Önnu Guðjónsdóttur, Hluti í stað heildar.

Höfundar og flytjendur: Hannes Þór Egilsson, Halla Þórðardóttir og Saga Sigurðardóttir
Tónlist: Hannes Þór Egilsson

Ókeypis er inn á viðburðinn. Viðburðurinn er varandi, hefur ekkert upphaf eða endi, og er gestum velkomið að koma og fara að vild.

Íslenski dansflokkurinn kynnir THIS GRACE í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.

To have a body is to be effectuated“ segir heimspekingurinn Bruno Latour um það að hafa líkama. Að hafa líkama er að vera í áhrifasambandi við umhverfi sitt.

THIS GRACE er kóreógrafísk hugleiðing um stað okkar og virkni sem hlutar af heild. Um veru okkar í rými og í veröld sem líkamar og þátttakendur í bæði fagurfræðilegri og vistfræðilegri heild.

Hvernig öndum við og hreyfum okkur sem hlutar af heild?

Dansararnir Halla, Hannes og Saga eiga stefnumót við innsetningarverk Önnu Guðjónsdóttur í Listasafni Reykjavíkur, Hluti í stað heildar. Þar verða líkamar þeirra hluti af sýningarrýminu og innsetningu Önnu; byggingu rýmisins, sjónvíddum, birtu og þeim merkingarheimi sem skapast.

Líkamarnir í verkinu eru skynjandi, þeir hreyfa sig undir áhrifum frá umhverfinu, þeir renna saman við og svara rýminu, og hafa markmið. Hringrás í tíma og rými undir áhrifum frá goðsögum og tímalausum kenningum um víxlverkun þar sem hugmynd mætir efni, þörf mætir nauðsyn og tilviljun leikur við tilgang.

 

sadsad