Þjóðerni:
Íslensk
Menntun: BA gráða frá London Contemporary Dance School, kennsluréttindi frá David Zambrano í Flying Low og Passing Through og 200 tíma kennsluréttindi í Yoga.
Starfsreynsla
Inga Maren hefur starfað hjá Íslenska dansflokknum síðan 2011. Á þeim tíma hefur hún unnið með fjölda danshöfunda á borð við Ernu Ómarsdóttir & Valdimar Jóhannson, Damien Jalet, Alexander Roberts & Ásrún Magnúsdóttir, Ragnar Kjartansson og Margrét Bjarnadóttir, Steinunn Ketilsdóttir, Anton Lackhy, Ohad Naharin, Jo Stromgren og Katrín Hall. Einnig samdi hún sólóverkið ÆVI sem var samstarfsverkefni með flokknum.
Aðrir danshöfundar sem hún hefur unnið með eru Fransesco Scavetta, Tinna Grétarsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir, Steinunn Ketilsdóttir og Andreas Constantinou, Bruno Caverna, Willi Dorner, Íslenska Óperan, Peter Andersson, Jóhann Freyr Björgvinsson og 50 collective (sýningarferð um Bandaríkin árið 2011). Að auki hefur hún dansað í auglýsingum og samið fyrir tónlistarmyndbönd.
Árið 2007 stofnaði Inga Maren Menningafélagið (Culture Comp.) ásamt Ásgeiri Helga Magnússyni, þar sem þau hafa starfað með Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur búninga- og sviðsmyndahönnuði, Lydíu Grétarsdóttur tónskáldi og Þóru Hilmarsdóttur leikstjóra. Saman hafa þau framleitt fimm sviðsverk og þrjár stuttmyndir. Verkið Aftursnúið hlaut tilnefningu til Grímuverðlauna og myndin Retrograde ferðaðist víðs vegar um heiminn á stuttmyndahátíðir. Tvö verkanna voru sýnd erlendis.
Einnig hefur Inga Maren stofnað aðra hópa í samstarfi við aðra listamenn;Reykjavík Dance Productions og Dari Dari Dance Company. Hóparnir hafa sýnt verk hérlendis og erlendis og unnið að vinnustofum eins og Danssmiðju Íd sem fór með dansprógram í skóla á höfuðborgarsvæðinu.
Inga Maren hefur kennt Flying Low og Passing Through tækni auk annars hjá Listaháskóla Íslands, Íslenska dansflokknum, Danslistarskóla JSB, Listdansskóla Íslands, Kramhúsinu, Artez og víðar.

Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd