
ÞEL er nýtt íslenskt verk eftir grímuverðlaunahafann Katrínu Gunnarsdóttur.
Katrín Gunnarsdóttir er íslenskum dansunnendum vel kunn enda hefur hún svo sannarlega lagt sitt af mörkum í þróun samtímadans á Íslandi undafarin ár. Katrín hefur hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímuverðlaunanna og þrívegis hlotið þau; sem Danshöfundur ársins 2018 fyrir Crescendo, Dansari ársins 2017 fyrir Shades of History og Danshöfundur ársins 2013 ásamt Melkorku Sigríði Magnúsdóttur fyrir Coming Up. Katrín hefur einnig tvívegis verið tilnefnd til Menningarverðlauna DV (2015 og 2016) og tilnefnd í TANZ magazine (2017) ásamt Marmarabörnum fyrir sýninguna Moving Mountains.
Verk Katrínar hafa verið sýnd víða um Evrópu ásamt því að hún hefur verið danshöfundur í sýningum hjá Þjóðleikhúsinu, Theatre Republique í Danmörku, Íslensku Óperunni og Toneelgroep í Amsterdam.













Danshöfundur:
Katrín Gunnarsdóttir
Búningar og sviðsmynd:
Eva Signý Berger
Tónlist:
Baldvin Þór Magnússon
Lýsing:
Kjartan Þórisson
Dramatúrgísk ráðgjöf:
Alexander Roberts og Ásgerður G. Gunnarsdóttir
Ljósmyndir:
Steve Lorenz
Dansarar:
Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Erna Gunnarsdóttir, Ernesto Camilo Aldazabal Valdes, Halla Þórðardóttir, Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Shota Inoue & Una Björg Bjarnadóttir
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd