Menntun: Listdansskóli Íslands og Codarts, Listaháskólinn í Rotterdam, Hollandi Ísabella Tara hóf nám við Codarts árið 2020 og útskrifaðist síðan árið 2024.
Á skólagöngu sinni fékk hún tækifæri til að vinna með dansörum frá meðal annars Nederlands Dans Theater, Peeping Tom og Hofesh Shechter Company. Á síðasta námsári sínu dvaldi Ísabella í starfsnámi hjá dansflokknum í St. Gallen í Sviss, undir listrænni stjórn Frank Fannars Pedersen. Þar tók hún þátt í verkum eftir þekkta danshöfunda á borð við Hofesh Shechter, Johan Inger, Jo Strømgren og fleiri. Að loknu námi flutti Ísabella til Torino, Ítalíu þar sem hún dansaði með Nuova De La Danza. Þar þróaði hún ný dansverk í samstarfi við danshöfundana Ethan Colangelo og Ellu Rothschild. Í dag tekur Ísabella þátt í sýningunni Garðinum eftir Kor’sia, sem er verk eftir Antonio de Rosa og Mattia Russo.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2025/09/isabella_tara-265x353.jpg)

![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2022/08/IDlogowhite-265x106.png)
Skráning á póstlistann

Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd