Matthea Lára Pedersen er sjálfstætt starfandi dansari búsett í Hollandi. Hún útskrifaðist úr samtímadeild Konunglega Sænska Ballettskólans árið 2020. Í kjölfarið var hún starfsnemi hjá MiR Dance Company í Þýskalandi og starfaði síðar sem sjálfstætt starfandi dansari með Cooperativa Maura Morales í Þýskalandi og Helenu Franzén í Svíþjóð.
Matthea hóf síðan störf hjá Nagelhus Schia Productions í Noregi, þar sem hún dansaði í verkum eftir Tom Weinberger, Ernu Ómarsdóttur og Damien Jalet. Árið 2022 varð hún hluti af hópnum Ivgi&Greben í Hollandi, og árið 2024 hóf hún störf með Shechter II, þar sem hún ferðaðist um Evrópu með sýninguna “From England with Love” eftir Hofesh Shechter – alls 92 sýningar.
Matthea starfar þessa dagana í Noregi með Jo Strømgren Kompani í sýningunni “The Convent” og með Íslenska dansflokknum í “The Garden” eftir Korsia.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2025/09/matthea-265x353.jpg)

![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2022/08/IDlogowhite-265x106.png)
Skráning á póstlistann

Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd