Black Marrow
Hve mikið mun það óafturkallanlega umbreyta okkur og sambandi okkar við umhverfið? Hversu háð erum við og hvað göngum við langt til að uppfylla þarfir okkar? Erum við olía framtíðarinnar?
Sýningardagur: 22. febrúar 2023
Með þessar spurningar að leiðarljósi sköpuðu Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet fyrstu útgáfuna af Black Marrow í Ástralíu árið 2009 sem þau hafa nú þróað enn frekar með dönsurum Íslenska dansflokksins. Erna og Damien finna hér upp á nútíma helgiathöfn út frá hinu forna sambandi mannsins við náttúruna. Með dönsurunum nýta þau hinn forna trans til að endurspegla heim þar sem eðlishvötin hefur verið iðnvædd og líkaminn umbreytist, stökkbreytist, gleðst og berst til að lifa af. Með því að nota rytma, endurtekningu og örmögnun í bland við seiðmagnaða tónlist Ben Frost, umbreytast dansararnir í steingervinga, vélar, heiðin goð og áhyggjulausan, glitrandi æskulýð. Hver einasta athöfn hefur tilgang – trans er oft læknandi. Black Marrow er eins og afmyndaður spegill, skyggð endurspeglun á nútímasambandi okkar við jörðina. Ljóðræn tilraun til að bjarga henni… eða okkur sjálfum.
Black Marrow var upprunalega samið fyrir Chunky Move dansflokkinn og samið í samvinnu við Sara Black, Paulo Castro, Julian Crotti, Alisdair Macindoe, Carlee Mellow & James Shannon. Black Marrow var fyrst frumsýnt á Alþjóðlegu listahátíðinni í Melbourne í október 2009.
Danshöfundar:
Erna Ómarsdóttir & Damien Jalet
Aðstoðarmaður danshöfunda:
Sara Black
Frumsamin tónlist:
Ben Frost
Önnur tónlist:
Danzel
Ljós:
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Búningar:
Júlíanna Steingrímsdóttir
Sviðsmynd:
Alexandra Mein, Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet, Júlíanna Steingrímsdóttir & Rebekka Moran
Grímur:
Rebekka Moran & Heimir Sverrisson eftir upprunalegri hönnun Alexandra Mein
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd