Klúbburinn er geimræn fiðluveröld sem áhorfandinn gengur inn í, ferðast um og tekur þátt í. Hér mætist fortíð, framtíð og nútíð í veldislausu og frjálsu rými sem táknmynd sameiningar og samstöðu sem og einstaklingsfrelsis. Þannig er verkið tillaga að framtíðar-samfélagsanda.
Frumsýning 11. nóvember 2022 á Litla sviði Borgarleikhússins.
Teknófiðludúóið Geigen samanstendur af tónskáldinu Pétri Eggertssyni og danshöfundinum og listakonunni Gígju Jónsdóttur. Þau stofnuðu Geigen í San Francisco haustið 2018 og hafa síðan í ársbyrjun 2019 staðið fyrir tónleikaupplifunum Geigen Galaxies sem hafa m.a. verið sýndar á Reykjavík Dance Festival/Vorblótinu, á listahátíðinni LungA á Seyðisfirði, nýmiðlahátíðinni Raflost og barnatónlistarhátíðinni Big Bang. Geigen er uppreisn gegn hinni klassísku birtingarmynd fiðlunnar, þráin til að þess að brjótast út úr hefðbundnum strúktúr, upphafning fiðlunnar og tilraun til þess að færa hana inn í framtíðina og nota hana sem sameiningarafl þvert á listgreinar.
Verkið er styrkt af Sviðslistaráði og var valið samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins veturinn 2022 – 2023.
Höfundar:
Geigen
Tónlist:
Geigen
Geigen:
Gígja Jónsdóttir & Pétur Eggertsson
Leikmynd:
Sean Patric O'Brien
Búningar:
Alexía Rós Gylfadóttir
& Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir
Ljós:
Kjartan Þórisson
Hljóð:
Ísidór Jökull Bjarnason
Æfingastjóri:
Kata Ingva
Ljósmyndir:
Axel Sigurðarson
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd