– samlífi manns og náttúru
Íslenski dansflokkurinn kynnir Garðurinn / Paradísarfuglar, kvöldstund þar sem dansverk og dansmynd mætast í sameiginlegri hugleiðingu um tengsl líkama, náttúru og skynjunar.
Dansmyndin Paradísarfuglar (Birds of Paradise) eftir Vikram Pradhan er tilraunakennd hugleiðing um vistkynhneigð, vistnæmni og tengslanet skógarins. Innblásturinn er sóttur í Chipko-hreyfinguna á Indlandi á áttunda áratugnum, þegar konur veittu skógarhöggi friðsamlega mótspyrnu með því að faðma tré og verða sjálfar að lifandi varnargarði gegn eyðingu skóga. Vikram ímyndar sér hvernig skógurinn gæti hafa brugðist við slíkum gjörðum verndar og kærleika.
Í verkinu birtist skógurinn ekki sem óvirkt landslag heldur sem skynjandi vera, fær um að dafna í gegnum viðurkenningu, nánd og gagnkvæm tengsl. Landslagið lifnar við af tilfinningalegri gagnkvæmni sem ögrar ríkjandi hugmyndum um forsjá og stjórn. Verkið opnar mynd af samlífi þar sem maður og náttúra vaxa saman í gagnkvæmum tengslum, byggðum á umhyggju og nærveru.
Parardísarfuglar deilir kvöldi með dansverkinu Garðinum eftir þá Antonio de Rosa og Mattia Russo og saman mynda þessi tvö verk eina heildstæða upplifun þar sem garðurinn og skógurinn verða að rýmum fyrir íhugun, næmni og tengsl. Garðurinn/Parardísarfuglar er boð um að stíga inn í lifandi landslag og upplifa nýjar leiðir til samveru.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2025/08/vikportrait-265x263.jpeg)
Vikram Pradhan
Vikram Pradhan stundaði nám við Srishti Institute of Art, Design, and Technology í Bangalore á Indlandi og lauk meistaragráðu frá hönnunardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Vikram hefur tekið virkan þátt í sýningum á Íslandi og jafnframt sýnt verk sín í V&A-safninu í London og á Indlandi. Hann var tilnefndur til Hvatningarverðlauna Íslensku myndlistarverðlaunanna. Dómnefndin benti á að í verkum hans mætti finna eftirtektarverðan skurðpunkt þar sem vísindaleg hugtök mætast hinu óáþreifanlega. Hann fléttar mannlega þætti inn í list sína og vekur þannig áleitnar spurningar um einstaklingsskynjun og tilvist mannsins. Verk hans einkennast af tilraunakenndri nálgun að hreyfingu og ljósmyndun, þar sem hann beitir persónulegri heimspeki sinni með sterka listræna sýn að leiðarljósi. Hann hefur unnið með viðfangsefni á borð við skýrdrauma, geðklofa, vistkynhneigð og pataphýsíska ljóðlist.
Höfundur, myndataka og hljóð:
Vikram Pradhan
Dansarar:
Andrean Sigurgeirsson, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Sara Lind Guðnadóttir, Una Björg Bjarnadóttir

Frumsýning 7. febrúar 2026 á stóra sviði Borgarleikhússins ásamt Garðinum