Nýir straumar í samtímadansi
Straumur er fjölbreytt kvöldstund þar sem fjórir upprennandi danshöfundar leiða okkur um ólíka heima samtímadansins. Danshöfundarnir voru valdir úr um 120 umsóknum sem bárust Íslenska dansflokknum víðsvegar að úr heiminum í kjölfar opins kalls.
Verkin fjögur eiga það sameiginlegt að beina sjónum að mannlegu eðli, en gera það frá ólíkum sjónarhornum og með afar ólíkum nálgunum.
Útkoman er eins konar hlaðborð af samtímadansi; fjórir ólíkir heimar, hver með sitt hreyfitungumál, sinn tón og sína sýn. Með Straumum gefst einstakt tækifæri til að kynnast fjölbreytileika samtímadansins og leyfa honum að koma sér á óvart.
Fjórir dúettar eftir fjóra danshöfunda
Frumsýning 30. október 2026 á Nýja sviði Borgarleikhússins.
Sýningadagar:
30. okt kl. 20:00
14. nóv kl. 17:00
21. nóv kl. 20:00
27. nóv kl. 20:00
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/1LeeviMettinen_OonaOikkonen_bw-265x331.jpg)
Blue Wall
Leevi Mettinen
Blue Wall eftir Leevi Mettinen er dansverk sem rannsakar óttann og þær birtingarmyndir sem hann getur tekið á sig.
Með því að hafna línulegri frásögn og hefðbundinni rökvísi sækir verkið innblástur í málverk sem kanna mörkin milli sársauka og nautnar. Það dregur jafnframt fram einstaklingsmiðaða sýn á mannslíkamann og tengsl velferðar og hernaðar. Í gegnum þetta landslag leitast tveir dansarar við að gefa óttanum form og miðla því hvernig hann getur birst og fundist.
Verkið og innri rökfræði þess leitast einnig við að varpa ljósi á og efast um skynsemi óttans og viðfangsefni hans. Bæði áþreifanlegur og óhlutbundinn ótti eru raunveruleg fyrirbæri og þetta er óður til þeirra.
Leevi Mettinen er finnskur dansari og danshöfundur með aðsetur í Reykjavík. Hann útskrifaðist með BA-gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands árið 2025 og var valinn til þátttöku í hinu virta danceWEB-prógrammi innan Impulstanz-hátíðarinnar, undir handleiðslu Isabel Lewis.
Í verkum sínum vinnur Leevi gjarnan á mörkum hreyfingar, myndlistar og samfélagslegra hugmynda. Samhliða eigin listsköpun stendur hann að gjörninga- og sviðslistarhátíðinni Komum út í mínus ásamt samstarfsfélögum sínum Bertine og Mörtu.
Imaarunneq
Sarah Aviaja Hammeken
IMAARUNNEQ kannar tengsl okkar við náttúruna og hvert annað. Hvað gerist þegar þessi tengsl rofna og við hættum að finna til ábyrgðar gagnvart heiminum sem við tilheyrum? Þegar umhyggjan dvínar og við fjarlægjumst allt sem nær út fyrir okkar eigin þarfir veikjast einnig tengslin okkar á milli. Samkenndin visnar og smám saman gufar mennskan upp. Hvað stendur eftir þegar við hættum að sjá okkur sem hluta af stærri heild?
Á grænlensku, kalaallisut, merkir IMAARUNNEQ að tæmast eða verða uppiskroppa með vatn. Verkið sækir innblástur í grænlenskar goðsagnir og þjóðsögur sem varðveita þekkingu á því hvernig lifa megi í sátt við heiminn. Sögur sem minna okkur á stöðu okkar innan náttúrunnar, á mörkin sem okkur ber að virða og afleiðingarnar þegar við gerum það ekki. Þessar frásagnir eru oft undarlegar, gróteskar og óþægilegar. Þær veita okkur ekki endilega huggun heldur beina sjónum okkar að þeim hliðum tilverunnar sem við kjósum gjarnan að líta undan. Þær minna okkur á að heimurinn er ekki til fyrir okkur ein.
Við getum reynt að halda í það sem heldur okkur á lífi, en vatni verður ekki haldið að eilífu. Vatnið heldur áfram að streyma. Hvað verður eftir þegar við höfum tæmt heiminn í kringum okkur og að lokum okkur sjálf?
Sarah Aviaja Hammeken er grænlensk-danskur danshöfundur og stofnandi AVIAJA Dance. Verk hennar spretta gjarnan úr samtali á milli líkamans, samfélagsins og menningararfs hennar sem Inúíta.
Undanfarin ár hefur hún vakið mikla athygli fyrir verk á borð við SILA, SOIL, Speech/less og WHITEOUT. Verk hennar hafa verið sýnd víða á Norðurlöndum, meðal annars á ICEHOT-hátíðinni í Ósló, og árið 2024 var hún valiní Young Artistic Elite starfsþróunarverkefni Danska listaráðsins. Nýjasta verk hennar, WHITEOUT, var frumsýnt í Dansehallerne í Kaupmannahöfn í febrúar 2025 og var einnig sýnt í Nuuk, Þórshöfn og Tromsø.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/Sarah-Aviaja-Hammeken_photo-credit_Amalie-Ivalo-Hammeken_23_bw-265x400.jpg)
Skjálftavaktin
Sóley Ólafsdóttir
Á Skjálftavaktinni hreyfast jarðskorpuflekar í takt og ótakt við suð áreitisins í kringum okkur. Áreitið verður svo mikið að höfuðkúpan umbreytist í grjóthart stál.
Í verkinu takast á ólík öfl, vélin og hin innri rödd. Öflin mætast við miðju hjartans og leita stjórnunar í talnakerfum sem stýra hreyfingum og hugsunum. Vélin heldur stöðugt áfram og reynir að þagga niður innri röddina sem umbreytist í draug. Hreyfingarnar búa yfir mikilli spennu og ferðast í verkinu milli þessara tveggja póla.
Tvö höfuð, draugsins og vélarinnar, finna hlýjan stað í húð og snertingu hvors annars. Þar fá hugsanirnar losun og fuðra upp um stund. Jarðskorpan suðar og harkan í höfðinu nennir ekki að finna til, þú getur varið þig með stálinu… en draugar hafa aldrei verið góðir í að sofna.
Sóley vinnur náið með raftónlistarmanninum Örlygi Steinari Arnalds. Í verkinu nota þau töfrakassann, aðferð úr tónsmíð sem yfirfærist á hreyfingarnar og skapar spennuþrungið samtal milli hreyfinga og hljóðs.
Sóley Ólafsdóttir er dansari og danshöfundur með BA-gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands. Frá útskrift hefur hún skapað eigin verk, samið fyrir hópa og unnið með fjölbreyttum listamönnum innan sviðslista. Í verkum sínum rannsakar hún meðal annars hugsanamynstur, taugakerfið og tengsl líkamans við umhverfi sitt.
Hún hefur komið fram í verkum eftir meðal annars Nooru Hannulu, Felix Urbina Alejandre, Maríu Ellingsen og Rósu Ómarsdóttur. Samhliða eigin verkum starfar hún með Leevi Mettinen undir nafninu BunnyVerse Company sem skapar dansverk fyrir börn. Árið 2025 hlaut hún hinn virta danceWEB-styrk, innan Impulstanz-hátíðarinnar, undir handleiðslu Raja Feather Kelly.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/Soley-Olafsdottir_bw-265x399.jpg)
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/1hiroki_0016_2-265x353.jpg)
Briefly Gorgeous
Hiroki Ichinose
Í gegnum tíðina hefur Hiroki Ichinose ítrekað flutt sig á milli borga, landa og heimsálfa. Með hverjum flutningi fylgja ekki aðeins eigur sem þarf að pakka niður heldur einnig minningar, sambönd og síbreytileg sýn á sjálfan sig. Briefly Gorgeous sprettur úr þessari persónulegu reynslu og veltir fyrir sér því sem við veljum að taka með okkur, því sem verður eftir og því sem reynist erfitt að sleppa takinu á.
Verkið nálgast umbreytingar, ekki sem ferðalag milli tveggja staða, heldur sem sammannlega reynslu þar sem endalok skapa rými fyrir nýtt upphaf, sorg afhjúpar dýpt tengsla okkar og fyrri útgáfur af okkur sjálfum halda áfram að móta þær ákvarðanir sem við tökum.
Hiroki Ichinose er japansk-bandarískur danshöfundur og dansari frá Hawai‘i. Verk hans hafa verið sýnd víða um heim, meðal annars í Svíþjóð, Ítalíu og Japan, og spanna bæði sviðsverk, kvikmyndir og samstarf við tónlistarfólk. Meðal nýlegra verkefna eru dansverkin RED og Lay Him Quietly, auk tónlistarmyndbandsins Hold Me sem hann skapaði í samstarfi við Ane Brun.
Ichinose var valinn einn af „25 to Watch“ af Dance Magazine árið 2016 og hefur á ferli sínum unnið með fjölmörgum virtum alþjóðlegum danshöfundum og danshópum. Hann starfaði m.a. um árabil með dansflokki Gautaborgaróperunnar en dansaði á síðasta ári með Íslenska dansflokknum og vann í kjölfarið Grímuna sem dansari ársins fyrir túlkun sína á Garðinum.
Höfundar:
Hiroki Ichinose, Leevi Mettinen, Sarah Aviaja Hammeken & Sóley Ólafsdóttir
Leikmynd:
Guðný Hrund Sigurðardóttir
Búningar:
Guðný Hrund Sigurðardóttir
Ljósahönnun:
Jóhann Friðrik Ágústsson
Tónskáld:
Ivo Mateus (Briefly Gorgeous)
Örlygur Steinar Arnalds (Skjálftavaktin)
Gerth Lyberth (Imaarunneq)
Ljóðskáld:
Rachel McNamee (Briefly Gorgeous)
Dramatúrg:
Victor Ketelsleger (Briefly Gorgeous)
Tónlist:
Gróa, Ugh (Blue Wall)
Vilde Tuv, Flute Naviagtion (Blue Wall)
Pavel Milyakov & Lucas Dupuy (Blue Wall)
Julianna Barwick, Inspirit (Briefly Gorgeous)
Philip Glass, Yuja Wang - Etudes: No.6 (Briefly Gorgeous)
Ana Roxanne, Atonement/Cover Me (Briefly Gorgeous)
Dansarar:
Andrean Sigurgeirsson, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Hiroki Ichinose, Ísabella Tara Antonsdóttir & Shota Inoue

Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann