Eftir Aðalheiði Halldórsdóttur, unnið í samstarfi við Jónsa
minntu mig, náttúra, á náttúruna í mér
Flóðreka er nýtt dansverk sem sprettur upp úr spennandi samstarfi danshöfundarins Aðalheiðar Halldórsdóttur, Jónsa úr Sigur Rós og Íslenska dansflokksins. Verkið er innblásið af hinni rómuðu sýningu Jónsa, Flóði, sem sýnd var í National Nordic Museum í Seattle og í Listasafni Reykjavíkur.
Í Flóðreka mætast hljóð, hreyfing, ilmur og umlykjandi heimur í skynrænni könnun á sambandi okkar við náttúruna – og hvort annað.
Jónsi er þekktur fyrir tilfinninganæma og angurværa hljóðheima sína. Verk hans fjalla oft á tíðum um hráa og yfirþyrmandi krafta náttúrunnar. Nálgun Aðalheiðar snýr að mennskunni. Viðkvæmni og seiglu mannlegs eðlis og hvötinni til að leita merkingar og tengsla, jafnvel andspænis ringulreiðinni.
“Fáránleiki og fegurð brothættrar mennsku, sem sífellt þvælist bæði fyrir og í sjálfri sér. Í eilífri leit að merkingu gleymist oft að það er öldugangur ólgandi úthafa sem rís og hnígur í brjósti mannsins.”
Athugið:
Í sýningunni blikka ljós mjög reglulega í gegnum allt verkið, og hljóð ferðast um allt rýmið, umhverfis áhorfendur. Áhorfendur sitja í návígi við flytjendur. Vinsamlegast hafið þetta í huga ef þið eruð viðkvæm fyrir sterku ljósi eða hljóði. Einnig fyllir lykt frá Fischersund rýmið, ilmur sem ber með sér keim af hafinu.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2024/12/Flodreka-Web-1080x1080_3-265x149.jpg)
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2024/12/Adalheidur-©-Bjorgvin.Sigurdarson-1-265x353.jpg)
Aðalheiður Halldórsdóttir
Aðalheiður Halldórsdóttir stundaði dansnám við Listdansskóla Íslands, Tanz Akademie Köln, Þýskalandi, danshöfundanám við ArtEz University of the Arts, Arnhem, Hollandi og síðar nám í Bókmenntafræði og Ritlist við Háskóla Íslands.
Aðalheiður var fastráðinn dansari við Íslenska Dansflokkinn í um 16 ára skeið og sem slíkur, var hún hluti af sköpunarferli um 50 smárra og stórra sviðsverka innan veggja Borgarleikhússins sem mörg hver túruðu um heiminn. Hún hefur jafnframt dansað, sungið og leikið í uppfærslum Íslensku Óperunnar, Leikfélags Reykjavíkur og ótal verkum innan sjálfstæðu danssenunnar.
Sem höfundur hefur Aðalheiður samið verk fyrir Íslenska dansflokkinn, Reykjavík Dance Festival og Ég býð mig fram, séð um sviðshreyfingar í leiksýningum Borgarleikhússins, unnið að gerð tónlistarmyndbanda og stuttmynda og sviðsett viðburði innan tónlistarvettvangsins þá helst með tónlistarkonunni Bríeti. Hún hefur auk þessa gegnt stöðu aðstoðarleikstjóra og leikstjóra.
Aðalheiður hefur verið hluti af listrænum kollektívum á við: Vaðall ásamt Valgerði Rúnarsdóttur og Darra Lorenzen, listamannkórnum Kliði, Die to meet you ásamt Kristínu Önnu Valtýsdóttur og síðustu ár stigið inn í performatíva viðburði Anne Carsson og Robert Currie bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur samhliða þessu sinnt ritstörfum og m.a. gefið út ljóðabókina Taugatrjágróður hjá útgáfu Bjarts & Veraldar.
Aðalheiður hefur hlotið fjölda Grímutilnefninga og verðlauna fyrir störf sín sem dansari, leikkona, danshöfundur og höfundur sviðshreyfinga í leikverki.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2024/12/53219394348_852dfe3c3c_k_2-265x271.jpg)

Búningahönnuður:
Arna Inga Arnórsdóttir
Ljósahönnun:
Jónsi og Isaac Cohen
Tæknihönnuður:
Damon Dorsey
Tæknistjóri:
Jóhann Friðrik Ágústsson
Dansarar:
Andrean Sigurgeirsson, Brian Gerke, Elín Signý Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Shota Inoue & Una Björg Bjarnadóttir
Sérstakar þakkir til Sunnevu Lífar Albertsdóttur

Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd