- Uppspretta og landslag skynjunar
Íslenski dansflokkurinn kynnir Garðurinn / Paradísarfuglar, kvöldstund þar sem dansverk og dansmynd mætast í sameiginlegri hugleiðingu um tengsl líkama, náttúru og skynjunar.
Í dansverkinu Garðinum, eftir þá Antonio de Rosa og Mattia Russo, verður stóra sviði Borgarleikhússins umbreytt í grasivaxinn garð. Danshöfundarnir endurhugsa Garðinn sem landslag skynjunar þar sem upplifanir renna saman við alheimsvitundina. Landslag líkama og mannlegar örsögur birtast okkur og hverfa jafnóðum í flæði sem endurspeglar brothætta mennsku, tengsl og nánd. Alheimssögur í smækkaðri mynd þar sem líf er í hverri frumu og heill heimur í hverjum dropa.
Antonio de Rosa og Mattia Russo eru forsprakkar listasamssteypunnar Kor´sia (Madrid). Þeir eru þekktir fyrir sjónrænt sterk verk þar sem dansinn fær að njóta sín og er þar Garðurinn engin undantekning.
Garðurinn deilir kvöldi með dansmyndinni Paradísarfuglar (Birds of Paradise) eftir Vikram Pradhan og saman mynda þessi tvö verk eina heildstæða upplifun þar sem garðurinn og skógurinn verða að rýmum fyrir íhugun, næmni og tengsl. Garðurinn/Parardísarfuglar er boð um að stíga inn í lifandi landslag og upplifa nýjar leiðir til samveru.
Flutt af dönsurum Íslenska dansflokksins
Frumsýning 7. febrúar 2026 á stóra sviði Borgarleikhússins.
Athugið: Í sýningunni koma fyrir kaflar með flöktandi ljósum.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2025/08/Korsia-265x177.jpeg)
Antonio de Rosa & Mattia Russo
Antonio de Rosa og Mattia Russo námu við Accademia Nazionale di Roma og Scuola di Ballo Teatro Alla Scala.
Antonio de Rosa starfaði fyrst með Maggio Fiorentino, Arena di Verona og Teatro alla Scala. Árið 2011 gekk hann til liðs við Compañía Nacional de Danza de España (CND).
Mattia Russo var hluti af Generalitat Valenciana Ballet og síðar Introdans, þar sem hann samdi nokkur verk sem danshöfundur, þar á meðal Frates og Behind me. Árið 2012 gekk hann til liðs við Compañía Nacional de Danza de España.
Þeir hafa báðir dansað aðalhlutverk í verkum eftir danshöfunda á borð við Johan Inger, Mats Ek, Goyo Montero, Rudolf Nureyev, George Balanchine, Maurice Béjart, Roland Petit, Jiří Kylián, Itzik Galili, José Carlos Martinez, Ramon Oller, Marcos Morau, Ohad Naharin, Sidi Larbi Cherkaoui, Jiří Kylián, Robert Battle, Hans van Manen, Angelin Preljocaj og William Forsythe.
Sem danshöfundar hafa þeir báðir skapað nokkur verk fyrir dansflokka og stofnanir á borð við Compañía Nacional de Danza, Guggenheim-safnið í Bilbao, Victor Ullate Ballet, Konzert Theater Bern, Opéra du Rhin Ballet, Teatro Massimo í Palermo og fyrir eigið danshóp: KOR’SIA, stofnað árið 2015 ásamt Giuseppe Dagostino. KOR’SIA hlaut verðlaunin „Unga hæfileikafólkið“ frá alþjóðlegu danshátíðinni Positano Leonide Massine árið 2016.

Höfundar:
Antonio de Rosa og Mattia Russo
Aðstoðardanshöfundur:
Matteo Marfoglia
Lýsing:
Pálmi Jónsson og Kor'sia
Leikmynd:
Kor'sia
Búningar:
Kor'sia og Karen Briem
Tónlist:
Caterina Barbieri, Arca, Rival Consoles, Rone feat. Camelia Jordana
Dansarar:
Andrean Sigurgeirsson, Diljá Sveinsdóttir, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Hiroki Ichinose, Ísabella Tara Antonsdóttir, Jaakko Fagerberg, Matthea Lára Pedersen, Sara Lind Guðnadóttir, Shota Inoue
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/03/where-we-meet1080x1080an-texta-265x158.jpg)
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/03/Move-With-Pride1920x1080-265x149.jpg)

Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd