- Nýjustu straumar í samtímadansi
Straumur er fjölbreytt kvöldstund þar sem fjórir upprennandi danshöfundar leiða okkur um ólíka heima samtímadansins. Danshöfundarnir voru valdir úr um 120 umsóknum sem bárust Íslenska dansflokknum víðsvegar að úr heiminum í kjölfar opins kalls.
Verkin fjögur eiga það sameiginlegt að beina sjónum að mannlegu eðli, en gera það frá ólíkum sjónarhornum og með afar ólíkum nálgunum.
Útkoman er eins konar hlaðborð af samtímadansi; fjórir ólíkir heimar, hver með sitt hreyfitungumál, sinn tón og sína sýn. Með Straumum gefst einstakt tækifæri til að kynnast fjölbreytileika samtímadansins og leyfa honum að koma sér á óvart.
Fjórir dúettar eftir fjóra danshöfunda
Frumsýning 30. október 2026 á Nýja sviði Borgarleikhússins.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/1hiroki_0016_2-265x353.jpg)
Hiroki Ichinose - Us moving on
Í gegnum tíðina hefur Hiroki Ichinose ítrekað flutt sig á milli borga, landa og heimsálfa. Með hverjum flutningi fylgja ekki aðeins eigur sem þarf að pakka niður heldur einnig minningar, sambönd og síbreytileg sýn á sjálfan sig. Us Moving On sprettur úr þessari persónulegu reynslu og veltir fyrir sér því sem við veljum að taka með okkur, því sem verður eftir og því sem reynist erfitt að sleppa takinu á. Verkið nálgast umbreytingar, ekki sem ferðalag milli tveggja staða, heldur sem sammannlega reynslu þar sem endalok skapa rými fyrir nýtt upphaf, sorg afhjúpar dýpt tengsla okkar og fyrri útgáfur af okkur sjálfum halda áfram að móta þær ákvarðanir sem við tökum.
Hiroki Ichinose er japansk-bandarískur danshöfundur og dansari frá Hawai‘i. Verk hans hafa verið sýnd víða um heim, meðal annars í Svíþjóð, Ítalíu og Japan, og spanna bæði sviðsverk, kvikmyndir og samstarf við tónlistarfólk. Meðal nýlegra verkefna eru dansverkin RED og Lay Him Quietly, auk tónlistarmyndbandsins Hold Me sem hann skapaði í samstarfi við Ane Brun.
Ichinose var valinn einn af „25 to Watch“ af Dance Magazine árið 2016 og hefur á ferli sínum unnið með fjölmörgum virtum alþjóðlegum danshöfundum og danshópum. Hann starfaði m.a. um árabil með dansflokki Gautaborgaróperunnar en dansaði á síðasta ári með Íslenska dansflokknum og vann í kjölfarið Grímuna sem dansari ársins fyrir túlkun sína á Garðinum.
Sóley Ólafsdóttir - Skjálftavaktin
Stökkbreytingin er óumflýjanleg, suðið er endalaust.
Er það að umbreytast í suðið í eigin huga, eyðilegging eða eðlileg aðlögun í heimi á heljarþröm? Höfuðkúpan umbreytist í grjóthart stál í sjálfshjálparviðleitni. Mannskeppnan lifir á jarðskorpuflekum sem hreyfast til og skjálfa. Hreyfingar sveiflast milli ofurstýringar og stjórnleysis, líkaminn skelfur og verður að sníkjudýrinu í höfðinu sem ekki er hægt að stöðva eða stjórna.
Hugsanir í ofur-örvuðu og grjóthörð höfðinu rekast endurtekið hvor á aðra við háan skell og hraunið sem myndar kúpuna utan um hugsanirnar verður á endanum að fá losun.
Á Skjálftavaktinni er suðið varanlegt. Höfuðið á mér bráðnar inní höfuðið á þér í þögninni sem lýkur allt of fljótt.
Skjálftavaktin kannar suð hugans, oförvun og taugakerfið sem kóreógrafískt landslag. Verkið sveiflast milli stjórnunar og stjórnleysis þar sem líkami og hugsun leita leiða til að losa um spennu og finna tengingu.
Sóley Ólafsdóttir er dansari og danshöfundur með BA-gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands. Frá útskrift hefur hún skapað eigin verk, samið fyrir hópa og unnið með fjölbreyttum listamönnum innan sviðslista. Í verkum sínum rannsakar hún meðal annars hugsanamynstur, taugakerfið og tengsl líkamans við umhverfi sitt.
Hún hefur komið fram í verkum eftir meðal annars Nooru Hannulu, Felix Urbina Alejandre, Maríu Ellingsen og Rósu Ómarsdóttur. Samhliða eigin verkum starfar hún með Leevi Mettinen undir nafninu BunnyVerse Company sem skapar dansverk fyrir börn. Árið 2025 hlaut hún hinn virta danceWEB-styrk, innan Impulstanz-hátíðarinnar, undir handleiðslu Raja Feather Kelly.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/Soley-Olafsdottir_bw-265x399.jpg)
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/1LeeviMettinen_OonaOikkonen_bw-265x331.jpg)
Leevi Mattinen - Blue Wall
Blue Wall eftir Leevi Mettinen er dansverk sem rannsakar óttann og þær birtingarmyndir sem hann getur tekið á sig.
Með því að hafna línulegri frásögn og hefðbundinni rökvísi sækir verkið innblástur í málverk sem kanna mörkin milli sársauka og nautnar. Það dregur jafnframt fram einstaklingsmiðaða sýn á mannslíkamann og tengsl velferðar og hernaðar. Í gegnum þetta landslag leitast tveir dansarar við að gefa óttanum form og miðla því hvernig hann getur birst og fundist.
Verkið og innri rökfræði þess leitast einnig við að varpa ljósi á og efast um skynsemi óttans og viðfangsefni hans. Bæði áþreifanlegur og óhlutbundinn ótti eru raunveruleg fyrirbæri og þetta er óður til þeirra.
Leevi Mettinen er finnskur dansari og danshöfundur með aðsetur í Reykjavík. Hann útskrifaðist með BA-gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands árið 2025 og var valinn til þátttöku í hinu virta danceWEB-prógrammi innan Impulstanz-hátíðarinnar, undir handleiðslu Isabel Lewis.
Í verkum sínum vinnur Leevi gjarnan á mörkum hreyfingar, myndlistar og samfélagslegra hugmynda. Samhliða eigin listsköpun stendur hann að gjörninga- og sviðslistarhátíðinni Komum út í mínus ásamt samstarfsfélögum sínum Bertine og Mörtu.
Sarah Aviaja Hammeken - Untitled
Verkið sækir innblástur í grænlenskar inúítasagnir og rannsakar hið viðkvæma samband milli mannkyns, samkenndar og tengsla okkar við heiminn í kringum okkur.
Í menningu Inúíta eru goðsagnir meira en einfaldar frásagnir, þær eru leiðarvísar að lífinu. Þær hafa gengið milli kynslóða og miðla virðingu fyrir náttúrunni, ábyrgð gagnvart öðrum og meðvitund um afleiðingar gjörða okkar. Verkið sækir innblástur í þessar sagnir sem eru oft á tíðum sérkennilegar, ógnvekjandi og oft hrjúfar í myndmáli sínu. Þær beina oftar en ekki sjónum að dekkri hliðum mannlegrar hegðunar.
Verkið umbreytir þessum fornu frásögnum í samtímalega íhugun um samtíð okkar. Í heimi sem virðist sífellt sundraðri og miskunnarlausari spyr það hvað gerist þegar við glötum hæfni okkar til samkenndar og umhyggju. Hvað verður um okkur þegar við gleymum þeim gildum sem eitt sinn tengdu okkur hvert öðru, náttúrunni og okkur sjálfum?
Sarah Aviaja Hammeken er grænlensk-danskur danshöfundur og stofnandi AVIAJA Dance. Verk hennar spretta gjarnan úr samtali á milli líkamans, samfélagsins og menningararfs hennar sem Inúíta.
Undanfarin ár hefur hún vakið mikla athygli fyrir verk á borð við SILA, SOIL, Speech/less og WHITEOUT. Verk hennar hafa verið sýnd víða á Norðurlöndum, meðal annars á ICEHOT-hátíðinni í Ósló, og árið 2024 var hún valiní Young Artistic Elite starfsþróunarverkefni Danska listaráðsins. Nýjasta verk hennar, WHITEOUT, var frumsýnt í Dansehallerne í Kaupmannahöfn í febrúar 2025 og var einnig sýnt í Nuuk, Þórshöfn og Tromsø.
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/Sarah-Aviaja-Hammeken_photo-credit_Amalie-Ivalo-Hammeken_23_bw-265x400.jpg)
Höfundar:
Hiroki Ichinose, Leevi Mettinen, Sarah Aviaja Hammeken og Sóley Ólafsdóttir
Leikmynd:
Guðný Hrund Sigurðardóttir
Búningar:
Guðný Hrund Sigurðardóttir
Ljósahönnun:
Jóhann Friðrik Ágústsson
Dansarar:
Andrean Sigurgeirsson, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundadóttir, Hiroki Ichinose, Ísabella Tara Antonsdóttir, Shote Inoue
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/08/Id-vedrid-1920x1080-v02-265x149.jpg)