![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/05/duettar_danshofundar_s-h-copy-1-265x265.jpg)
Að loknu opnu kalli Íslenska dansflokksins til upprennandi danshöfunda hafa fjórir höfundar verið valdir til þátttöku í nýju verkefni flokksins: Sóley Ólafsdóttir, Leevi Mettinen, Hiroki Ichinose og Sarah Aviaja Hammeken. Þau sóttu öll um með sterkar og áhugaverðar hugmyndir sem þau fá nú tækifæri til að þróa áfram og sjá lifna við á sviðinu.
Viðbrögðin við kallinu voru afar sterk og bárust vel á annað hundrað umsóknir frá danshöfundum víðs vegar að úr heiminum. Sérstaka athygli vekur hversu stór hluti umsækjenda kemur erlendis frá, sem endurspeglar vaxandi áhuga á samstarfi við íslenska danssenu.
Markmið verkefnisins er að veita nýjum danshöfundum raunverulegt tækifæri til að þróa og setja upp stutt verk í faglegu og skapandi umhverfi. Þátttakendur munu vinna í nánu samstarfi við dansara Íslenska dansflokksins, með stuðningi reynslumikils listræns teymis, og fær hver höfundur tvo dansara úr flokknum til samstarfs.
Fyrr á þessu ári bárust einnig 940 umsóknir í opnar áheyrnarprufur fyrir dansara flokksins, sem undirstrikar þann mikla alþjóðlega áhuga sem starfsemi flokksins vekur.
Verkin munu deila sama sviði þar sem fjögur ný örverk mynda eina heild og varpa ljósi á nýjar raddir í samtímadansi. Frumsýning fer fram 30. október á Nýja sviði Borgarleikhússins.