![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/02/samstarf-26-27_1920x1080-265x149.jpg)
Íslenski dansflokkurinn auglýsir eftir samstarfsverkefnum!
Íslenski dansflokkurinn auglýsir eftir samstarfsverkefnum og leitar að danshöfundi og sviðslistahópum til samstarfs fyrir dansárið 2026–2027.
Samkvæmt 13. grein sviðslistalaga skal dansflokkurinn kosta kapps um samstarf við stofnanir, félög og aðra sem stunda danslist, með það að markmiði að skapa listrænan ávinning og fjölbreytni. Þess vegna gerir Íslenski dansflokkurinn formlega samstarfssamninga við umsækjendur sem uppfylla þessi markmið.
Umsóknir skulu innihalda greinargerð um verkefnið, ítarlega fjárhagsáætlun og upplýsingar um aðstandendur, listræna stjórnendur og alla þátttakendur. Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar næstkomandi og umsóknir skulu sendar í tölvupósti til id@id.is
![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/02/samstarf-26-27-1-265x265.jpg)