![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/03/skolasyningar_9bekk_1080x1080-265x265.jpg)
Skólasýningar á Garðinum
Undanfarnar vikur hefur Íslenski dansflokkurinn tekið á móti nemendum í 9. bekk úr alls 12 grunnskólum.
Það var sannarlega gaman að taka á móti öllum þessum glöðu krökkum og enn ánægjulegra að fá upplýsingar frá kennurum og skólastjórnendum um viðbrögð og umræður sem sköpuðust í hverjum skóla fyrir sig í kjölfarið.
Skólasýningar á Garðinum er hluti af fræðslustarfi Íslenska dansflokksins, sem miðar að því að fræða ungmenni um starfsemi flokksins og danslistina.
Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna.

Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann