![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2026/03/open-call-1080x1080-1-265x265.jpg)
Íslenski dansflokkurinn leitar að danshöfundum sem eru að stíga sín fyrstu skref og vilja þróa verk sem verður hluti af kvöldi örverka.
Hvert verk má vera að hámarki 20 mínútur að lengd og fær hver danshöfundur til samstarfs, u.þ.b. 2 dansara úr flokknum. Gert er ráð fyrir einfaldri umgjörð, bæði hvað varðar umfang og kostnað.
Markmið verkefnisins er að veita nýjum danshöfundum tækifæri til að skapa verk í faglegu umhverfi, þróa hugmyndir sínar í samstarfi við dansara flokksins, ljósahönnuð, sviðsmynda- og búningahönnuð og með faglegri listrænni ráðgjöf.
Danshöfundar fá greidd laun sem nema tveimur mánuðum af danshöfundalaunum. Þar af um 3-4 vikur til æfinga með dönsurum í stúdíói og á sviði. Vinnutímabil er frá september 2026 og fyrirhuguð frumsýning er 30. október 2026.
Sendu umsóknina á id@id.is
Við mat á umsóknum verður meðal annars horft til:
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026. Svör munu berast eigið síðar en 15. apríl 2026.
Athugið að Íslenski dansflokkurinn getur ekki boðið upp á ferða-, dagpeninga- né gistingarstyrki fyrir danshöfunda búsetta erlendis. Umsóknir eru þó opnar öllum, óháð búsetu og uppruna.
Við hvetjum alla upprennandi danshöfunda til að sækja um. Hér gefst einstakt tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, afla sér dýrmætrar reynslu og sjá verk sín lifna við á sviði.