![[Íd] Íslenski dansflokkurinn](https://id.is/wp-content/uploads/2025/01/samstarfsauglysing-2025-265x265.jpg)
Samkvæmt 13. gr. sviðslistalaga ber Íslenska dansflokknum að auglýsa eftir samstarfsverkefnum á hverju ári:
„Íslenski dansflokkurinn skal kosta kapps um samstarf við stofnanir, félög og aðra sem sinna danslist með listrænan ávinning og fjölbreytni að markmiði. Dansflokkurinn auglýsir eftir samstarfsaðilum ár hvert og gerir formlega samstarfssamninga berist umsókn um samstarf sem er til þess fallið að ná markmiðum ákvæðisins.“
Hér með auglýsir Íslenski dansflokkurinn eftir umsóknum danshöfunda og sjálfstæðra sviðslistahópa vegna sýningarársins 2025-2026. Með umsókn skal senda greinargerð um verkefnið þar sem því er skilmerkilega lýst, ásamt ítarlegri fjárhagsáætlun. Auk þess skulu fylgja með upplýsingar um aðstandendur verkefnisins, listræna stjórnendur og alla þátttakendur.
Umsóknarfrestur er til miðnættis, föstudaginn 7. febrúar 2025 og skulu umsóknir sendar í tölvupósti á netfangið id@id.is
Jafnframt má senda umsóknir bréfleiðis og skulu þær berast Lovísu Ósk Gunnarsdóttur, starfandi listdansstjóra, Listabraut 3, 103 Reykjavík.
Skráning á póstlistann
Borgarleikhúsinu
Listabraut 3, 103 Reykjavík
588 0900 | Miðasala 568 8000
Skráning á póstlistann
Skilmálar
Persónuvernd